Frístundaakstur í sumar

Á morgun miðvikudag 8. júní breytast áætlunarferðir Suðurleiða í Fjallabyggð. Tímasetningar ferðanna hafa verið sniðnar að æfingatíma KF í sumar og mun rútan því ferðast á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar þannig að iðkendur KF komist á réttum tíma á æfingar. Íbúar Fjallabyggðar geta einnig nýtt sér rútuna sem ferðakost sé nægt pláss í henni eftir að allir iðkendur KF eru komnir um borð, en eins og gefur að skilja verða þeir að ganga fyrir.

Hérna má finna nýja tímatöflu yfir rútuferðirnar í sumar.

Hérna má finna æfingatöflu KF sumarið 2011.

Gleðilegt knattspyrnusumar.