Fréttabréf SSNE fyrir nóvember 2022

Út er komið mánaðarlegt fréttabréf SSNE fyrir nóvember 2022 - það síðasta sem kemur út á árinu en þó ekki það síðasta af árinu, en desember fréttabréfið kemur út í byrjun janúar. 

Fréttabréfið er stútfullt af áhugaverðum fréttum af vettvangi SSNE og við mælum með lestri til að stytta biðina eftir jólunum. 

Efst á baugi er auðvitað opnun Stéttarinnar á Húsavík sem verður fagnað pompi og opnu húsi á föstudaginn næsta, 9. desember. Húsið verður formlega tekið í notkun með ávarpi Forseta Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, kl. 16.15 en fleiri góðir gestir munu taka þátt. Það verður opið hús fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemina í húsinu og mælum við í SSNE auðvitað með að mæta og mun starfsfólk okkar vera á staðnum og bjóða ykkur velkomin. 

Nóvember fréttabréf SSNE