Framtíðarhúsnæði félagsmiðstöðvarinnar Neons opnað

Mynd: Úr nýju húsnæði Neon
Mynd: Úr nýju húsnæði Neon

Síðast liðið mánudagskvöld, þann 17. október, varð langþráður draumur unglinga í Fjallabyggð að veruleika en þá var framtíðarhúsnæði félagsmiðstöðvarinnar Neons opnað við Suðurgötu 4 á Siglufirði.

Síðustu frágangsverk eru í vinnslu og fyrirhugað að setja lyftu í húsnæðið seinna í vetur. Húsnæðið er stórt og rúmgott og allt hið glæsilegasta. Fjölmargir unglingar mættu á fyrstu opnun og var ekki annað að sjá en að allir væru himinlifandi með nýju aðstöðuna. Það voru verktakar úr heimabyggð sem sáu um framkvæmdina og er óhætt að segja að vel hafi tekist til.
Húsnæðið skiptist í stóran rúmgóðan sal með sófum, poolboði, borðtennis, þythokký, píluspjöldum og fótboltaspili ásamt nýjum hljómflutningsgræjum. Þá er sérstakt spila/hópa/fundarherbergi, leikjatölvuherbergi, sjónvarpshol og starfsmannaaðstaða/eldhúskrókur.

Starfsmenn Neons í vetur eru Karen Sif Róbertsdóttir sem er umsjónarmaður,  Hörður Ingi Kristjánsson, Lísebet Hauksdóttir, Patrekur Þórarinsson og Ragna Dis Einarsdóttir.
Reglulegar opnanir verða á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 20 – 22 og svo bætast við sérstakir viðburðir og ferðir yfir veturinn.

Unglingarnir í Neon ætla að bjóða íbúum Fjallabyggðar að koma og skoða nýja húsnæðið þegar framkvæmdum er að fullu lokið. Verður sú opnun auglýst þegar nær dregur, vonandi mjög fljótlega.

Nokkrar myndir frá opnunardegi Neons