Þórir Þórisson, Katrín Jakobsdóttir og Svanfríður Jónasdóttir skrifa undir samkomulagið.
Í dag var skrifað undir samkomulag um byggingu framhaldsskóla við
utanverðan Eyjafjörð. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Svanfríður Jónasdóttir oddviti
Héraðsnefndar Eyjafjarðar og bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð og Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri
Fjallabyggðar undirrituðu samninginn sem lengi hefur verið beðið eftir.
Undirritunin fór fram í Tjarnarborg að viðstöddum 10. bekkingum frá Dalvík,
Ólafsfirði og Siglufirði ásamt bæjarstjórum, bæjarfulltrúum og íbúum af
Eyjafjarðarsvæðinu. Að undirskrift lokinni risu viðstaddir á fætur og mikil
fagnaðarlæti brutust út.
Búið er að skipa bygginganefnd og er áætlað að framkvæmdir við
skólabyggingu í Ólafsfirði hefjist þegar á þessu ári. Þar sem byggingu skólans
verður ekki lokið fyrr en árið 2010, er gert ráð fyrir að skólahald hefjist í
bráðabirgðakennsluaðstöðu haustið 2009. Fyrirhugað er að kennt verði á Dalvík, Siglufirði og
í Ólafsfirði, í samstarfi við aðra framhaldsskóla í Eyjafirði. Skólanefnd
verður skipuð fljótlega og auglýst verður eftir skólameistara í byrjun árs
2010.