Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD

Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD verður haldið laugardagana 15. og  29.október 2011 á vegum ADHD samtakanna.

Námskeiðið verður í fjarfundi og stendur yfir frá  kl. 10:00  til 14:45 báða dagana.  Lögð verður áhersla á að foreldrar öðlist góðan skilning á ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna sinna.

Áhugasamir hafi samband á bæjarskrifstofuna í síma 4649100 eða sendi póst á:

hrefna@fjallabyggd.is eða helgah@fjallabyggd.is fyrir 30.september nk.

Félagsþjónusta Fjallabyggðar