Þriðjudaginn 5. mars mun NPA miðstöðin halda fræðslufund um notendastýrða persónulega aðstoð og sjálfstætt líf fyrir
fatlað fólk og aðstandendur þess, aðstoðarfólk, starfsfólk sveitarfélaga og bæjarstjórnarfólk. Mun hún fara fram
í Menntaskólanum við Tröllaskaga á Ólafsfirði frá kl. 15:00-19:00.
Fræðslan er í tengslum við
tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð og unnin í
samstarfi við Velferðarráðuneytið.
Markmið fræðslunnar er að kynna inntak og þýðingu hugmyndafræði baráttuhreyfinga fatlaðs fólks um sjálfstætt
líf og helstu hornsteina hennar. Það er jafnframt að kynna reynslu annarra þjóða af notendastýrðri persónulegri aðstoð á
grundvelli hugmyndafræðinnar og hvaða leiðir hafa verið farnar við innleiðingu og framkvæmd. Fræðslan mun einnig miðast að því
að kynna reynslu fatlaðra frumkvöðla á Íslandi sem hafa verið með persónulega aðstoð í gegnum þjónustusamninga við
ríki og sveitarfélög. Þeir mun varpa ljósi á þær leiðir sem þeir hafa farið við skipulag og uppbyggingu eigin aðstoðar,
ásamt því að segja frá hvaða þýðingu það hefur að öðlast vald og um leið ábyrgð yfir eigin lífi,
frelsi til að móta eigin lífstíl og taka þannig virkan þátt í samfélaginu.
Fyrirlesarar verða Freyja Haraldsdóttir, Embla Ágústsdóttir, Gísli Björnsson, Aldís
Sigurðardóttir og Vilborg Jóhannsdóttir.
Aldís Sigurðardóttir er móðir Ragnars Emils sem er fimm ára leikskólastrákur með hreyfihömlun og lang-varandi
taugahrörnunar-sjúkdóm. Hún hefur barist af miklum krafti ásamt eiginmanni sínum fyrir að hafa NPA allan sólarhringinn svo Ragnar geti alist upp
í eigin fjölskyldu, lifað sjálfstæðu lífi og búið við mannréttindi rétt eins og systkini hans tvö. Fékk Ragnar
samþykktan NPA samning í maí 2012 eftir fjögra ára baráttu. Aldís hefur verið í stjórn NPA miðstöðvarinnar frá
stofnun hennar.
Embla Ágústsdóttir er nemi í félags- og kynjafræði við HÍ og stjórnarformaður NPA
mið-stöðvarinnar. Hún hefur komið að því að sinna jafningjaráðgjöf við annað fatlað fólk sem sækist eftir NPA
ásamt því að hafa tvisvar leitt sjálfstyrkingarnámskeið fyrir fatlaðar unglingsstúlkur. Embla hefur síðustu ár unnið að
því að fá NPA samning til þess að geta lifað sínu lífi eins og aðrar ungarkonur í Íslensku samfélagi en hefur
eingöngu fengið samþykkt hluta af þeirri aðstoð se hún þarf.
Freyja Haraldsdóttir hefur lokið námi í þroskaþjálfafræði við HÍ og stundar nú framhaldsnám
í hagnýtri jafnréttisfræði við sama skóla. Hún er framkvæmdastýra NPA miðstöð-varinnar en sat áður í
stjórn sem varaformaður. Hún hefur ferðast mikið erlendis til að kynna sér baráttustarf fatlaðs fólks, þá einkum á sviði
hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og NPA. Freyja hefur verið með persónulega aðstoð að hluta til frá árinu 2007 og fékk
loks samþykkta sólarhringsaðstoð árið 2011, þá eftir sjö ára baráttu.
Gísli Björnsson er í diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við HÍ og starfar sem organisti í
Laugarneskirkju. Hann er varaformaður stjórnar NPA miðstöðvarinnar ásamt því að starfa sem sendiherra Samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks. Gísli hefur verið með persónulega aðstoð að hluta í tvö ár en heyir enn baráttu fyrir NPA
samningi sem uppfyllir þá þörf fyrir aðstoð sem hann hefur, svo hann geti búið í eigin íbúð, stundað nám og vinnu og
lifað sínu sjálfstæða lífi.
Vilborg Jóhannsdóttir er lektor í þroskaþjálfafræðum við Menntavísindasvið HÍ. Hún vinnur
nú doktorsrannsókn um innleiðingu hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og skoðar
áhrif þess á hlutverk fagfólks í þjónustukerfinu. Vilborg hefur í fræðastörfum sínum unnið náið með
fötluðu baráttufólki á Íslandi sem og á erlendum vettvangi og kynnt sér þróun samvinnufélaga fatlaðs fólks, einkum
á Norðurlöndum.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Fræðsluhópur NPA miðstöðvarinnar