Frábær Trilludagur laugardaginn 27. júlí 2024

Frábær Trilludagur laugardaginn 27. júlí 2024

Trilludagar voru haldnir á Siglufirði í sjöunda sinn laugardaginn 27. júlí og tókust þeir einstaklega vel. Góð stemning var á bryggjunni og veðrið lék við hvern gest.

Að þessu sinni voru það 10 eldhressir trillukarlar og aðstoðarfólk þeirra sem sáu um siglingarnar þeir Andri Viðar Víglundsson, Ásgeir Frímanns, Ellert Ólafsson, Gestur Hansson, Gunnar Júlíusson, Jóhann Örn Guðbrandsson, Jón Kort Ólafsson, Lúðvík Trausti Gunnlaugsson, Reynir Karlsson og Þiðrik Unason.

Um 600 gestir fóru á sjó og tók hver sigling um 40-60 mínútur. Biðröðin í bátana hélst þétt yfir daginn og voru gestir hátíðarinnar allir sammála um að upplifunin af siglingunni hefði verið biðarinnar virði enda bros á hverju andliti þegar í land var komið. Sjóstangir voru um borð í trillunum og komu allir bátar með fisk á grillið.

Á bryggjunni stóðu vaskir Kiwanismenn og konur vaktina við flökun og grill og afgreiddu þau um 1600 diska af góðgætinu ásamt grilluðu grænmeti. Pylsur og drykkir voru einnig á boðstólum.

Tónlistarsnillingarnir og heimamennirnir Stúlli, Tóti og Guito fluttu alla bestu slagarana á bryggjunni sem gerði stemminguna frábæra. Síldargengið fór rúnt um bæinn og endaði dagurinn kl. 16 með síldarsöltun og bryggjuballi við Síldarminjasafnið. 

Ungliðar úr björgunarsveit Smástráka á Siglufirði og Djarfi í Ólafsfirði önnuðust gæslu við hoppukastala og Björgunarsveitin Strákar voru við gæslu á sjó. Bryggjugengið í ár samanstóð af þeim Sigríði Ingvarsdóttur, Ríkeyju Sigurbjörnsdóttur, Lindu Leu Bogadóttur og Kolbeini Óttari Proppé. Einnig voru til aðstoðar starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar, hafnarinnar og Fiskmarkaðarins.

Fjallabyggð færir trillueigendum og trillukörlunum, félögum úr Kiwanisklúbbnum Skildi á Siglufirði, Smástrákum, Djarfi, Björgunarsveitinni Strákum, Fiskmarkaðnum á Siglufirði, starfsmönnum þjónustumiðstöðvar, hafnarinnar og öllum þeim fjölmörgu sem að hátíðinni komu bestu þakkir fyrir þeirra þátttöku á Trilludögum 2024.

Þökkum einnig þeim þúsundum gesta sem lögðu leið sína á Trilludaga í ár.