Forsýningar á Skammdegi á Akureyri

Listhús Artspace kynnir með stolti forsýningu á hinni árlegu SKAMMDEGI FESTIVAL. Á hverju ári velur Listhús Artspace listamenn allstaðar að úr heiminum fyrir Skammdegi Air verðlaunin. Listamennirnir dvelja í Ólafsfirði frá desember fram í febrúar og fá að upplifa veturinn á Norðurlandi. Listamennirnir sem eru ýmist sjónlistamenn, flytjendur, tónlistarmenn og rithöfundar sýna verk sín á Skammdegi Festival sem mun eiga sér stað í Ólafsfirði frá 28. janúar til 28. febrúar.
Myndlistarfélagið á Akureyri er stoltur gestgjafi forsýningar á Skammdegi dagana 16. og 23. janúar 2016. Yfir þessar tvær helgar munu listamennirnir í Listhúsinu sýna verk sín sem túlka, tjá og svara til Skammdegisins eða stutta daga.  Sýningarnar opna kl. 16:00. Tónleikar verða kl. 20:00

Listamenn sem taka þátt:
Jack Duplock (London, málari)
Ellis O’Connor (Skotland, málari)
Jade de Robles (London/Barcelona, hönnuður)
Devon Tipp (New York, tónlistarmaður & tónskáld)
Will Plowman (Bristol, tónlistarmaður)
Alkisti Terzi (Skotland, kvikmyndagerðarmaður)
Ksenia Yurkova (Rússland, ljósmyndari)
Rachel Beetz (Bandaríkin, tónlistarmaður)
Ruan Suess (Skotland, kvikmyndatökumaður)
Samuel Cousin (Kanada, sjónlistamaður)
Natalia Kalicki (Kanada, sjónlistamaður)
Fernanda Chieco (Brasilíal, málari)
Scott Probst (Ástralía, rithöfundur og sjónlistamaður)
Judy b. (Bandaríkin, rithöfundur/söngvari)
Adam Sloan (Liverpool, hljóð/sjónlistamaður & tónlistarmaður)
Laura Campbell (Liverpool, hljóð/sjónlistamaður & tónlistarmaður)

Skammdegi sýning á Akureyri