Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum forstöðumanni til að leiða stofnunina.
Forstöðumaður sér um flokkun og skráningar safngagna, daglegan rekstur, starfsmannamál, skipulag og umsýslu. Hann er jafnframt
umsjónarmaður Listasafns Fjallabyggðar og sér um upplýsingamiðstöð ferðamála á Siglufirði sem staðsett er í
bókasafni. Starfsstöðvar bóka- og héraðsskjalasafns eru á Siglufirði og Ólafsfirði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun í bókasafns- og upplýsingafræðum skilyrði
Reynsla í starfi æskileg
Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og metnaður í starfi
Góð kunnátta í íslensku auk kunnáttu í öðru tungumáli
Góð tölvukunnátta
Bílpróf
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. janúar 2013.
Umsókn skal fylgja yfirlit um nám og störf og berast til Karítasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa, Ólafsvegi
4, Ólafsfirði.
Umsóknarfrestur er til 21.des. nk.
Tengiliðir: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri, sigurður@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og Karítas
Skarphéðinsdóttir Neff, fræðslu- og menningarfulltrúi, karitas@fjallabyggd.is, s. 464 9100.