Formlegri opnun á sýningu á efri hæð Pálshúss, Ólafsfjarðarstofu, í Ólafsfirði FRESTAÐ

Áður auglýstri formlegri opnun á sýningu á efri hæð Pálshúss, Ólafsfjarðarstofu, í Ólafsfirði sem fram átti að fara laugardaginn 1. ágúst er frestað vegna Covid-19 takmarkana.

Við ætlum samt að hafa efri hæðina opna frá  kl. 13  laugardaginn 1. ágúst, ásamt listsýningum þeirra Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og Tinnu Gunnarsdóttur í sýningarsalnum.

Framvegis verður allt safnið opið á opnunartíma kl.13-17.

Farið verður eftir þeim reglum um sóttvarnir sem gefnar hafa verið út og gæti þurft að stýra fjölda gesta inn í húsið af þeim sökum.

Stjórn Fjallasala ses.