Foreldrafélag Leikskála gefur leikskólanum kerrur

Foreldrafélag Leikskála með kerrurnar
Foreldrafélag Leikskála með kerrurnar

Foreldrafélag Leikskála  keypti tvær 6 bura kerrur fyrir ágóðann af páskahappadrætti félagsins og færði leikskólanum að gjöf.
Kerrurnar eru mjög veglegar og fylgja þeim bæði regnplast og svuntur. Þær eru með "auto lock" kerfi og er kerran því alltaf í bremsu nema ýtt sé á handfang auk þess sem 5 punkta belti er í hverju sæti.

Kerrurnar gefa starfsmönnum leikskólans aukið tækifæri til vettvangsferða með 12 af yngstu börnum leikskólans á sama tíma, sem áður var ekki hægt.