Glæsileg dagskrá um sjómannadagshelgina

Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði er hin glæsilegasta. Það er Sjómannadagsráð Ólafsfjarðar sem hefur haft veg og vanda að gerð dagskrárinnar sem höfðar til fólks á öllum aldri. Á meðal skemmtikrafta sem koma fram má nefna; Pétur Jóhann, Friðrik Dór, Eyþór Ingi, Ari Eldjárn og Gói. Eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til þátttöku í hátíðarhöldunum.

Dagskráin á pdf.

Dagskrá um Sjómannadagshelgina 2015