Fjórtán verkefni valin á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fram fer á Siglufirði 29. mars nk.

Fjórtán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði þann 29. mars næstkomandi.
Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt og sóttu þrjátíu verkefni af öllu landinu um á Fjárfestahátíðina.

Kjarnastarfsemi Norðanáttar snýr að svokölluðum FEW-nexus eða matur- orka- vatn og þau verkefni sem taka þátt snerta öll á þessum áherslum með einum eða öðrum hætti. Umsóknir voru metnar út frá því hversu vel verkefnin falla að áherslum hátíðarinnar og fjárfestatækifæri verkefnisins.

Verkefnin sem munu taka þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru:

Bambahús - Úr drasli í nasl (VF)
Biopol - Ocean Gold (N)
EONE ehf. - e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)
Frostþurrkun ehf. - Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)
Gefn - Nýsköpun í grænni efnafræði (H)
GeoSilica Iceland - GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)
GreenBytes - Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)
Gull úr Grasi - Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)
IceWind - Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)
Kaja Organic - Jurtamjólkur verksmiðja (V)
Melta - Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)
Skógarplöntur ehf. - Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)
Vínland Vínekran -  Vínrækt, víngerð, veitingarstaður og vínmeðferða Spa (S)
YGG - Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)

Fjárfestahátíð NORÐANÁTTAR

Norðanátt, með stuðningi frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, stendur fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði dagana 29. & 30. mars 2023.

Fjárfestahátíð Norðanáttar er vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt og vilja kynna sínar hugmyndir fyrir fjárfestum og þar með auka fjárfestingatækifæri á  landsbyggðinni. Á fjárfestahátíðinni, sem haldin er í marsmánuði ár hvert, kynna frumkvöðlar verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.