Fjölskyldudagur í íþróttahúsum Fjallabyggðar

Fjölskyldudagur verður haldinn í íþróttahúsum Fjallabyggðar laugardaginn 22. nóvember kl. 12-14  

Nú geta foreldrar og börn komið saman, prófað og kynnt sér hinar ýmsu íþróttagreinar um leið og fjölskyldan gerir sér glaðan dag saman (ath. við viljum endilega að foreldrar taki þátt).

Um er að ræða opið hús fyrir alla sem hafa áhuga, þar sem íþróttafélögin og Fjallabyggð standa saman að því að kynna hinar ýmsu íþróttagreinar.

Meðal þess sem stendur til að kynna og prófa er: knattspyrna, badminton, blak, frjálsar íþróttir, golf, boccia og annað sem okkur dettur í hug að prófa (fer eftir fjölda og áhuga þeirra sem mæta).

 

Frítt verður í sund allan daginn í tilefni dagsins