Á myndinni er frá vinstri:
Jóna Björg Árnadóttir, Áslaug Inga Barðadóttir, Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri, Sigurbjörg Ingvadóttir og Guðmundur Ingi Bjarnason
Fjölmenni við formlega opnun Kaffi Klöru
Í tilefni þess að nýir eigendur hafa tekið við rekstrinum á Kaffi Klöru á Ólafsfirði, buðu þeir gestum og gangandi upp á heitt súkkulaði með rjóma og nýbakaðar vöfflur sl. laugardag. Óhætt er að segja að fjölmenni hafi lagt leið sína á staðinn og notið góðra veitinga þegar veitinga- og gistihúsið var opnað á ný eftir breytingar.
Af því tilefni færði bæjarstjóri Fjallabyggðar nýjum eigendum blóm og óskaði þeim velfarnaðar á komandi tímum og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á veitingastaðnum verður boðið upp á fjölbreyttan matseðil í notalegu umhverfi.
Fjallabyggð óskar eigendum og rekstraraðilum Kaffi Klöru til hamingju með staðinn og óskar þeim góðs gengis í framtíðinni.