Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði 10. febrúar 2019.
Fjarðargangan stígur nú upp og verður að glæsilegum viðburði. Mikill metnaður er lagður í gönguna svo að upplifun þín verði sem skemmtilegust. Brautarlögn er sérstaklega gerð fyrir trimmara og er aðal markmiðið að hafa gaman og í leiðinni skora á sjálfan sig.
30 km fyrir 17 ára og eldri
Allir sem taka þátt í 30 km fá veglegan verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
15 km fyrir 12 ára og eldri
Allir sem taka þátt í 15 km fá verðlaunapening.
5 km ekkert aldurstakmark
skráningargjald 1.000 kr, engin tímamörk á skráningu, allir þátttakendur fá verðlaunapening.
Drög að dagskrá 8.-9. febrúar 2019
Föstudaginn 8. febrúar:
Afhending gagna og brautarlýsing
Sunnudagur 10. febrúar
11:00: Fjarðargangan - allir flokkar ræstir
16:00: Veisla í Tjarnarborg, verðlaun, útdráttarverðlaun, glæsilegt veislukaffi 20:00: Fjarðargönguhátíð, borðhald
Verið hjartanlega velkomin í Fjallabyggð