Fjarðargangan í Ólafsfirði 2019

Fjarðargangan fer fram í Ólafsfirði 9. febrúar 2019 og er skráning hafin.  Fjarðargangan verður glæsileg að vanda og er mikill metnaður lagður í viðburðinn að þessu sinni. Brautarlögn er sérstaklega gerð fyrir trimmara með það að aðalmarkmiði að hafa gaman og í leiðinni skora á sjálfan sig. 

Skráning hér

30 km fyrir 17 ára og eldri
Skráningargjald 7.000 kr. til og með 2. febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 10.000 kr. Skráningu líkur 7. febrúar kl. 21:00. Hámark 150 þátttakendur, dregið í happadrætti úr skráðum þátttakendum 1. desember, 2. janúar og 2. febrúar. Allir sem taka þátt í 30 km fá veglegan verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar. 
15 km fyrir 12 ára og eldri
Skráningargjald 4.000 kr. til og með 2. febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 6.000 kr. Skráningu líkur 7. febrúar kl. 21:00. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 1. desember, 2. janúar og 2. febrúar. Allir sem taka þátt í 15 km fá verðlaunapening. 
5 km ekkert aldurstakmark
Skráningargjald 1.000 kr. engin tímamörk á skráningu, allir þátttakendur fá verðlaunapening. 

Drög að dagskrá 8.-9. febrúar 2019
Föstudaginn 8. febrúar:
Afhending gagna og brautarlýsing
Laugardaginn 9. febrúar
11:00: Fjarðargangan - allir flokkar ræstir
16:00: Veisla í Tjarnarborg, verðlaun, útdráttarverðlaun, glæsilegt veislukaffi 20:00: Fjarðargönguhátíð, borðhald

Verið hjartanlega velkomin í Fjallabyggð!