Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og eða rökstuddum ábendingum/tilnefningu um bæjarlistamann Fjallabyggðar

Elías Þorvaldsson bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2020
Elías Þorvaldsson bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2020

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum í Fjallabyggð eða rökstuddum ábendingum / tilnefningu um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2021.  Aðeins þeir listamenn sem búsettir hafa verið í Fjallabyggð, að minnsta kosti um tveggja ára skeið koma til greina. Nafnbótin getur hvort sem er hlotnast einstaklingum eða hópi. Auk nafnbótarinnar er bæjarlistamanni veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í janúar 2021.  Styrkur til bæjarlistamanns 2021 nemur kr. 300.000 til einstaklings og kr. 400.000 til hóps.

Umsækjendur og þeir sem senda inn ábendingar eru beðnir um að haga umsóknum í samræmi við reglur um Bæjarlistamann sem finna má á heimasíðu bæjarins www.fjallabyggd.is

Umsóknir og tilnefningar þurfa að vera rökstuddar. Listamenn láti ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil sinn fylgja sem og hugmyndir um á hvern hátt nýta eigi styrkinn við listsköpun.

Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað fyrir 28. október nk. með tölvupósti á netfangið lindalea@fjallabyggd.is eða gegnum heimasíðu bæjarins „Rafræn Fjallabyggð - Íbúagátt - Menningarmál - Bæjarlistamaður Fjallabyggðar" 

 

Fjallabyggð 1. október 2020
Markaðs- og menningarnefnd

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Fjallabyggðar.

Auglýsing til útprentunar