Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í endurbætur utanhúss á Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði.
Helstu magntölur eru:
- Fjarlægja eldri múr og einangrun 320m2
- Múrhúðun og uppsetning einangrunar 320m2
- Málun 320m2
Verkið er áfangaskipt og verður unnið í tveimur áföngum á árunum 2019-2020.
Nánari upplýsingar og tilboðsgögn veitir Ármann Viðar Sigurðsson hjá tæknideild Fjallabyggðar, armann@fjallabyggd.is
Tilboði skal skila í Ráðhús Fjallabyggðar eigi síðar en 3. júní 2019 kl. 14:00 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.