Í dag, 12. október 2022, hlaut Fjallabyggð viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar. Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar og viðurkenningarathöfn.
Það eru Félag kvenna í atvinnulífinu ásamt samstarfsaðilum úr forsætisráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, RÚV og Pipar/TBWA sem halda nú í fimmta sinn ráðstefnu um jafnréttismál kynjanna.
59 fyrirtæki, 6 sveitarfélög og 11 opinberir hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2022.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með forsætisráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, Ríkisútvarpið og PiparTBWA. Verkefninu var komið á fót á árinu 2017 og hefur náð að festa sig í sessi sem mikilvægur þáttur í því að vekja fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til umhugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis með auknum jöfnuði kynja í stjórnunarstöðum.
Eins og fram kemur á vef verkefnisins er tilgangur þess að:
- auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi
- virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
- veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
- standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
- taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöðu
Jafnvægisvogin
Fréttatilkynning JV 2022