Fjallabyggð auglýsir útboð á skólamáltíðum fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar

Fjallabyggð auglýsir eftir tilboðum í skólamáltíðir fyrir nemendur og starfsmenn í Grunnskóla Fjallabyggðar skólaárin 2021-2024. Áætlað magn skólamáltíða fyrir næsta skólaár er 31.143 nemendamáltíðir og 1.460 starfsmannamáltíðir.  Samið er til þriggja ára með möguleika á framlengingu samnings tvisvar sinnum eitt ár í senn.

Útboðsgögn er hægt að nálgast á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði eða rafrænt gegnum netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is

Verðtilboð sendist til;

Bæjarskrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði, eða rafrænt á fjallabyggd@fjallabyggd.is í síðasta lagi miðvikudaginn 2. júní 2021 kl. 13:00, þá verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska .

Nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála s. 4649100 eða í gegnum netfangið rikey@fjallabyggð.is