Fimm milljónum úthlutað úr Vaxtarsamningur Eyjafjarðar

Á haustfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sem haldin var í menningarhúsinu Bergi í sl. viku var m.a. tilkynnt um úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar, þá þriðju og síðustu á þessu ári. Fimm miljónum króna var úthlutað til fjögurra fjölbreyttra verkefna, þar af hlutu þrír aðilar úr Dalvíkurbyggð styrki.  

Verkefnin sem hlutu stuðning að þessu sinni eru:

Ektafiskur - Tilbúnar vörur úr söltuðum afskurði - 1.500.000 kr.
Sportferðir ehf - Köfunarmiðstöðin Hjalteyri - 1.500.000 kr.
Bergmenn ehf. - Arctic Heli Skiing II - 1.000.000 kr.
Bílaklúbbur Akureyrar - Ökugerði – akstursíþróttasvæði - 1.000.000 kr.

Vaxey mun auglýsa aftur eftir verkefnum í janúar á nýju ári.