Ferðumst saman – morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða

Mynd: Golli
Mynd: Golli

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar nk. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.

Fundurinn verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík og er opinn öllum. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10.

Fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

+ Skráning á morgunverðarfund

Dagskrá:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
  • Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
    „Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“
  • Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.
    „Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“
  • Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EnTur í Noregi
    „Entur – connecting public transport across Norway.“
  • Pallborðsumræður með fyrirlesurum

Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.