Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara Fjallabyggðar heldur áfram

Golf eldri borgara á Skeggjabrekkuvelli 2018
Golf eldri borgara á Skeggjabrekkuvelli 2018

Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara er formlega hafið og er dagskráin fjölbreytt að venju. Allir heldri borgarar Fjallabyggðar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið félagsstarfsins í vetur.

Dagskrár eru aðgengilegar hér fyrir neðan fyrir Hús eldri borgara í Ólafsfirði og Skálarhlíð Siglufirði. 

Skálarhlíð - Siglufirði   Hús eldri borgara í Ólafsfirði 

Dagskrár verða framlengdar eða uppfærðar eftir því sem við á og gilda núverandi dagskrár til og með 28. september nk.

Nánari upplýsingar veitir Helga Hermannsdóttir, Skálarhlíð, í síma 467-1147 og 898-1147 og Gerður, Hús eldri borgara, sími 864-4887