Félagsráðgjafi óskast til starfa við félagsþjónustu Fjallabyggðar
Helstu verkefni félagsþjónustu Fjallabyggðar eru; félagsleg ráðgjöf, barnavernd, þjónusta við aldraða, forvarnarmál, auk þess sem málefni fatlaðra heyrir undir félagsþjónustu sveitarfélagsins. Unnið er með öðrum fagstéttum í þverfaglegum teymum og áhersla lögð á samvinnu og sjálfstæð vinnubrögð.
Hæfnikröfur
- Félagsráðgjafamenntun er áskilin ásamt starfsleyfi frá Heilbrigðisráðuneytinu
- Reynsla á sviði barnaverndar og almennrar félagsþjónustu er æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð og góðir samskiptahæfileikar
- Bílpróf
Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og framlagðra gagna.
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá merkt: Félagsþjónusta Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða á netfangið hh@fjallabyggd.is. Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Hjartarson, félagsmálastjóri, sími 464-9100.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2009