Fegrum Fjallabyggð – niðurstaða íbúakosninga

Íbúakosning lýðræðisverkefnisins Fegrum Fjallabyggð fór fram dagana 13. – 26. mars. Alls tóku 356 manns þátt í kosningunni eða 21,5% íbúa 15 ára og eldri. Fimm verkefni hlutu kosningu og raðast á þær 20  milljónir sem úthlutað var til verkefnisins. Mörg áhugaverð verkefni sem ekki hlutu kosningu munu samt sem áður fá verðskuldaða umfjöllun í stjórnkerfi bæjarins.

Þau verkefni sem hlutu kosningu og verða framkvæmd á árunum 2023 og 2024 eru eftirfarandi:

Fegrum Fjallabyggð 2023-2024

Nafn

Atkvæði

Kostnaður

Bæta leiksvæðin við Fossveg og Laugarveg - Siglufirði

111

5 millj.

Aparóla neðst í Gullatúninu hjá tjaldsvæðinu - Ólafsfirði

103

3,5 millj.

Lítil bátabryggja og aðgengi að Langeyrartjörn – Siglufirði

101

5 millj.

Minigolfvöllur við tjaldsvæðið - Ólafsfirði

97

5 millj.

Flokkunarstöð fyrir ferðafólk – Ólafsfirði

22

1 millj.

Samtals:

434

19,5 millj.

 

Nánari upplýsingar um niðurstöður kosninga og hvernig talningu atkvæða er háttað er að finna hér.