Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings. Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2007 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
  • Áherslu á vetrartímann (vetrarmenningu og vetrarlist).
  • Samstarf yfir vetrartímann milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
  • Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
  • Skapandi starf fyrir börn og unglinga.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Útlutun fer fram í nóvember. Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings, www.eything.is eða hjá Menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð, Akureyri.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is.