Ath framlengdur frestur ! Eyþing auglýsir eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020

Vakin er athygli á að umsóknarfrestur vegna áhersluverkefna fyrir árið 2020 hefur verið framlengdur til 31. janúar 2020.

Eyþing auglýsir eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Hægt er að skila inn hugmyndum  á netfangið vigdis@eything.is

Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Verkefni geta til dæmis verið ráðgjafar- og átaksverkefni á sviði nýsköpunar-, menningar- og umhverfismála.
Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn Eyþings og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál.

Yfirlit yfir áhersluverkefni Eyþings má finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is.

Horft verður til færri og stærri styrkja á sviði umhverfis-, menningar- og atvinnumála að þessu sinni. Fram þarf að koma lýsing á verkefninu ásamt mögulegri framkvæmd þess.

Sóknaráætlun Eyþings 2020-2024

Eyþing – samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum