Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra þann 4. október og af því tilefni verða ráðgjafar frá SSNE, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, á ferð um landshlutann vikuna 4. - 7. október til að veita persónulega ráðgjöf um næstu skref.
Ráðgjafarnir verða hjá okkur á Ólafsfirði mánudaginn 4. október kl. 11:30-13:00 og á Siglufirði kl. 14:30-16:00, skráning fer fram hér en ráögjöfin er ykkur að kostnaðarlausu.
Hér má sjá tímaáætlun ráðgjafa SSNE

Allar upplýsingar um sjóðinn og ferlið má finna á heimasíðu SSNE en
Uppbyggingarsjóður Norðurlands veitir styrki í eftirfarandi flokkum fyrir árið 2022:
· Verkefnastyrkir á sviði menningar
· Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
· Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
Í takt við sóknaráætlun landshlutans verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem snúa að umhverfismálum.
Sjóðurinn er samkeppnissjóður og opnar fyrir umsóknir mánudaginn 4. október 2021 og lokar fyrir umsóknir miðvikudaginn 10. nóvember 2021 kl. 13:00.
Auglýsing í pdf