Tillaga að nýju aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008 - 2028

Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Fjallabyggðar2008 – 2028  samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.  Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24,  Siglufirði,  Ólafsvegi 4, Ólafsfirði og Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík   frá og með miðvikudeginum 23. júní 2010  til og með miðvikudagsins 21. júlí 2010.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til miðvikudagsins 4. ágúst 2010.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofu Gránugötu 24, Siglufirði eða Ólafsvegi 4, Ólafsfirði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. 

Dreifbýlisuppdráttur:
http://teikn.is/fjallabyggd/2-dreifbyli-samsett.pdf

Ólafsfjarðaruppdráttur:
http://teikn.is/fjallabyggd/2-olafs-samsett.pdf

Siglufjarðaruppdráttur:
http://teikn.is/fjallabyggd/2-siglo-samsett.pdf

Greinargerðin í lítilli upplausn:
http://teikn.is/fjallabyggd/ask-fjallabyggd-litil_uppl-230610.pdf

Greinargerðin í prentupplausn: (mjög þung)
http://teikn.is/fjallabyggd/ask-fjallabyggd-prentuppl-230610.pdf

Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggðar.