Sigrún Ingólfsdóttir (mynd SK)
Á mánudag útnefndi Kaupmannafélag Siglufjarðar Sigrúnu Ingólfsdóttur, verkstjóra Vinnuskólans á
Siglufirði sem „Mann ágústmánaðar“ fyrir mikinn dugnað og atorku í starfi sínu fyrir Vinnuskólann.
Sigrún hefur, ásamt
unglingunum sem hún stjórnaði, vakið athygli fyrir mikil afköst og snyrtilegan
frágang þeirra verkefna sem þau tóku fyrir. Kaupmannafélagið afhenti Sigrúnu viðurkenningarskjal og blómvönd í viðurkenningarskyni.
"Þetta
var raunar ekkert erfitt, góðir flokkstjórar og ekki hvað síst, þá hefi
ég hefi þekkt alla þessa krakka frá því þau voru 6 ára, fyrst í
leikskólanum, síðan í barnaskólanum og nú í unglingavinnunni. Þetta
voru samviskusamir og duglegir krakkar", sagði Sigrún og þakkaði fyrir
sig.
Við óskum Sigrúnu til hamingju með titilinn.