Frjó menningarhelgi á Siglufirði dagana 13. - 16. júlí 2023

Frjó menningarhelgi á Siglufirði dagana 13. - 16. júlí 2023 

Frjó er Fjagra daga listahátíð þar sem fram koma listamenn og skapandi einstaklingar sem framkalla list sína með ólíkum miðlum og sameinast í einum suðupotti um miðjan júlí ár hvert. Tekist hefur að stuðla að og byggja upp á Siglufirði sannkallaðann leikvöll listarinnar þar sem tilraunamennska, galsi og frjálst flæði leika lausum hala. Sumarið gefur tilefni til langra bjartra nátta og orkan sem umlykur allt er mögnuð eins og einungis gerist á þeim árstíma. Alþýðuhúsið stækkar því viðburða og sýningarstaði sína út í Garð og víða um bæ og nýtur samstarfs fyrirtækja, bæjarfélagsins og annara menningaraðila. Listamönnum og gestum sem taka þátt í Frjó, gefst færi á að upplifa fjölda listviðburða á dag, dvelja saman og miðla list sinni, skoðunum og kunnáttu. Verða fyrir áhrifum hvort af öðru, mynda tengsl og jafnvel samstarf sem nær útfyrir hátíðina. Kynnast bæjarfélaginu, náttúrunni sem er allt um likjandi og áhugasömum bæjarbúum og öðrum gestum.

Þátttakendur:

Helgi Þórsson
Línus Orri Gunnarsson Cederborg og hljómsveit
Gerður Kristný
Skúli Sverrisson
Ólöf Arnalds
Ragnhildur Weisshappel
Óskar Guðjónsson
Eyþór Gunnarsson
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
Matthías Hemstock
Una Margrét Árnadóttir
Örn Alexander Ámundason
Guðrún María Finnbogadóttir
Þórir Hermann Óskarsson
María Sól Ingólfsdóttir
Þóra Kristín Gunnarsdóttir
Sari Cedergren
Jonna Jónborg Sigurðardóttir
Haust
Pía Rakel Sverrisdóttir
Kristján Jóhannsson
Kristína Berman
Örlygur Kristfinnsson
Hildur Örlygsdóttir
Arnfinna Björnsdóttir
Andrea Weber
Lefteris Yakoumakis
Garún
Bára Kristín Skúladóttir
Ólöf Helga Helgadóttir
Hulda Vilhjálmsdóttir

Dagskrá: 

Fimmtudagurinn 13. júlí

Kl. 11:00 - Garún opnar sýningu á Norðurgarði, bryggjunni á Ólafsfirði. Opið alla hátíðina.
Kl. 12:30 - Kjörbúðin Siglufirði - Lefteris Yakoumakis opnar sýningu.
Kl. 13:00 - Segull 67 - Jonna Jónborg Sigurðardóttir opnar sýningu.
Kl. 13:00 - Segull 67 - Sari Cedergren opnar sýningu.
Kl. 14:00 - Herhúsið - Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýningu.
Kl. 15:00 - Söluturnin Aðalgötu - Hildur Örlygsdóttir og Örlygur Kristfinnsson opna sýningu.
Kl. 16:00 - Ráðhússalur Gránugötu 25 - Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason, sýningaropnun.
Kl. 16:15 - Ráðhússalur Gránugötu 25 - Örn Alexander Ámundason - Gjörningur
Kl. 17:30 - Ljósastöðin - Haust opnar sýningu

Föstudagurinn 14. júlí

Kl. 12:00 - 18:00 - Kjörbúðin Siglufirði - Lefteris Yakoumakis sýnir.
Kl. 13:00- 16:00 - Segull 67 - Jonna Jónborg Sigurðardóttir sýnir.
Kl. 13:00 - 16:00 - Segull 67 - Sari Cedergren sýnir.
Kl. 13:00 - 16:00 -  Ráðhússalur - Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason sýna
Kl. 14:00 - 16:00 - Herhúsið - Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir.
Kl. 14:00 - 16:00 - Ljósastöðin - Haust sýnir
Kl. 14:00 - Kompan Alþýðuhúsinu - Helgi Þórsson opnar sýningu
Kl. 15:00 - 16:30 - Vinnustofa Arnfinnu Aðalgötu 13 - Arnfinna Björnsdóttir Vinnustofa opin.
Kl. 16:00 - Rauðkuloft - Andrea Weber opnar sýningu
Kl. 21:00 - MOVE tónleikar í Alþýðuhúsinu  - Linus Orri Gunnarsson Cederborg og hljómsveit verða með tónleika kl. 22:00 - Óskar Guðjónsson, Eyþór Gunnarsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Matthías Hemstock.

Laugardagur 15. júlí

Kl. 12:00 - 18:00 - Kjörbúðin Siglufirði - Lefteris Yakoumakis sýnir
Kl. 13:00 - 17:00 - Pís Rakel Sverrisdóttir og Kristján Jóhannsson, vinnustofusýning í Eyrargötu 27 A.
Kl. 13:00- 16:00 - segull 67 - Jonna Jónborg Sigurðardóttir sýnir.
Kl. 13:00 - 16:00 - Segull 67 - Sari Cedergren sýnir.
Kl. 13:00 - 16:00 - Ráðhússalur Gránugötu 25 - Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason sýna.
Kl. 14:00 - 16:00 - Bára Kristín Skúladóttir og Ólöf Helga Helgadóttir sýna í bílskúrnum Hólavegi 14.
Kl. 14:00 - 16:00 - Herhúsið - Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir.
Kl. 14:00 - 16:00 - Ljósastöðin - Haust sýnir.
Kl. 14:00 - 15:00 - Kristína Berman, dansað í eða við Alþýðuhúsið
Kl. 14:00 - 17:00 - Kompan - Helgi Þórsson sýnir
Kl. 15:00 - Alþýðuhúsið Kompan - Gerður Kristný les úr eigin verkum
Kl. 16:00 - Alþýðuhúsið Kompan - Guðrún María Finnbogadóttir og Þórir Hermann Óskarsson, tónleikar kl. 21.00 - Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds, tónleika

Sunnudagur 16. júlí

Kl. 12:00 - 18:00 - Lefteris Yakoumakis sýnir í Kjörbúðinni.
Kl. 13:00- 16:00 - Jonna Jónborg Sigurðardóttir sýnir í Segul 67
Kl. 13:00 - 16:00 - Sari Cedergren sýnir í Segul 67
Kl. 13:00 - 16:00 - Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason sýna í Ráðhússal.
Kl. 14:00 - 16:00 - Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir í Herhúsinu
Kl. 14:00 - 16:00 - Haust sýnir í Ljósastöðinni
Kl. 14:00 - 17:00 - Helgi Þórsson sýnir í Kompunni
kl. 15:00 - Ragnhildur Weisshappel verður með listamannaspjall
Kl. 16:00 - María Sól Ingólfsdóttir og Þóra Kristín Gunnarsdóttir, Tónleikar

Aðrir menningaraðilar í Fjallabyggð

Kaffi Klara - Ida Semey opnar sýningu 14. júlí, opið kl. 10.00 - 17.00 alla daga.
Ljóðasetrið - viðburður kl. 16.00 alla daga.
Þjóðlagasetrið - opið 12.00 - 18.00 alla daga.
Síldarminjasafnið, tankurinn 14. júlí kl. 20.00 - Edda Björk Jónsdóttir og Rena Rasouli.
Ljósmyndasögusafnið - opið 14. 15. 16. júlí kl. 13.00 - 16.00
Pálshús, Ólafsfjörður - Wiola Ujazdowska sýnir, opið 13.00 - 17.00 alla daga.

 Auglýsing

Logo, Uppbyggingasjóður, Fjallabyggð, Eyrarrósin, Rammi hf, Aðalbakarinn, Kjörbúðin, Segull 67, Ljósastöðin