Betur fór en á horfðist

Mynd: Lögreglan
Mynd: Lögreglan

Í dag fór rúta út af veginum við Brimnes í Ólafsfirði með um 25 erlenda ferðamenn sem voru á leið á Síldarminjasafnið.. Ekki er talið að um alvarleg meiðsl sé að ræða á fólki. Opnuð var fjöldahjálparstöð í Menntaskólanum á Töllaskaga. Viðbragðsaðilar brugðust fljótt og vel við og eru að ljúka störfum á vettvangi.