Skráning hafin í vinnuskólann.

Nemendur vinnuskóla 2011
Nemendur vinnuskóla 2011
Skráning í vinnuskóla er hafin. Þeir sem eru fæddir 1997, 1998, 1999 og 2000 geta skráð sig í Vinnuskóla Fjallabyggðar.
Skráning fer fram á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar í Ólafsfirði og Siglufirði, eða á haukur@fjallabyggd.is 

Skilyrði er að viðkomandi ungmenni eða a.m.k. annað foreldri hafi lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi hafi stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.

Vinnufyrirkomulag skýrist þegar skráningu er lokið. 
Hægt verður að tryggja þeim sem skrá sig fyrir 20. maí að lágmarki eftirfarandi vinnu:
· Árg. 2000: 4 vikur ½ daginn. Byrja 10. júní.
· Árg. 1999: 5 vikur allan daginn mán-fim og  f.h. föstudaga. Byrja 1. júlí 
· Árg. 1997 og 1998: Byrja 10. júní og vinna 8 vikur allan daginn.

Ekki verður hægt að tryggja lágmarksvinnu fyrir þá sem skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Tímafjöldinn fer eftir skráningu og því jafnvel möguleiki á meiri vinnu.
Nánari upplýsingar verða birtar eftir 20. maí á heimasíðu Fjallabyggðar.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Sigurðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi