Ég læt til leiðast, sýning í Kompunni

Laugardaginn 5. mars kl. 15:00 opnar Brynhildur Kristinsdóttir sýninguna ÉG LÆT TIL LEIÐAST í Kompunni Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin stendur til 20. mars.

"Ég læt til leiðast" er yfirskrift sýningar Brynhildar Kristinsdóttur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði þar sýnir hún skúlptúra og myndverk. Verkin eru flest mótuð úr pappamasssa og álpappír og fjalla um tjáningu mannsins, hvernig hugmyndir hlutgerast og orð falla í stafi.

Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.