Deiliskipulag Leirutanga - opið hús

Ráðhús Fjallabyggðar
Ráðhús Fjallabyggðar

Í dag verður opið hús fyrir almenning, sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tillögu að deiliskipulagi Leirutanga áður en hún er tekin til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Opið hús verður á tæknideild Fjallabyggðar í Ráðhúsinu á Siglufirði, Gránugötu 24 frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00 þriðjudaginn 17.mars 2015.
Allir sem vilja kynna sér tillöguna eru hvattir til að mæta.