Myndina tók Sigurður Ægisson (siglfirdingur.is)
Bæjarstjórnir Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar hafa ákveðið að eiga með sér samstarf um sameiginleg hagsmunamál
sveitarfélaganna.
Ætlunin er að efla og styrkja enn frekar núverandi samstarf þeirra, með það að leiðarljósi að bæta þá
þjónustu sem þegar er til staðar í sveitarfélögunum og styrkja þannig stoðir þessara samfélaga.
Í tilefni þess m.a. heimsóttu starfsmenn bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar sveitarfélagið heim föstudaginn 13. maí sl. og tóku
starfsmenn bæjarskrifstofu Fjallabyggðar á móti þeim.
Komið var saman í ráðhúsi bæjarfélagsins en þar gafst tækifæri til að kynnast, miðla upplýsingum og fara yfir sameiginleg
mál er snerta þjónustu við íbúa.
Ætlunin er að byggja upp traust tengsl og munu starfsmenn Fjallabyggðar sækja Dalvíkingana heim að ári. Í lok vinnutarnar var tekin mynd fyrir framan
Ráðhús Fjallabyggðar.
Dalvíkingarnir gerðu sér síðan glaðan dag, fóru í búðir, á söfn og borðuðu síðan á Hannes
boy.