Dagur Tónlistarskólanna á Íslandi

Tónskóli Fjallabyggðar í samstarfi við félagsmiðstöðina NEON verður með opið hús í Menningarhúsinu Tjarnarborg föstudaginn 22. febrúar.
Húsið verður opið frá kl. 15 .00 – 17.00 og fram koma nemendur og kennarar Tónskóla Fjallabyggðar. Boðið verður upp á  skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði. Félagsmiðstöðin Neon ætlar að bjóða bæjarbúum upp á vöfflur, kaffi og kakó sem þakklætisvott fyrir frábæran stuðning við áheitamaraþon Neons sl. helgi.

Við viljum hvetja alla íbúa fjallabyggðar að koma og skoða nýju aðstöðu Tónskóla Fjallabyggðar í Menningarhúsinu Tjarnarborg.