Dagskrá í Alþýðuhúsinu á Föstudaginn langa

Dagskráin á Föstudaginn langa í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hefst kl. 15:00 með opnun sýningar Huldu Vilhjálmsdóttur í Kompunni. Hulda býr og starfar í Reykjavík, hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands og hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Hulda hefur getið sér gott orð fyrir ljóðræn og oft á tíðum dularfull málverk þar sem hún fjallar um hugarástand menneskju á næman máta.

Gjörningadagskrá hefst kl. 15:30 þar sem fram koma Freyja Reynisdóttir , Brák Jónsdóttir, Magnús Pálsson og Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.
Freyja og Brák hófu gjörningasamstarf á síðasta ári og tóku meðal annars þátt í gjörningahátíðinni A! á Akureyri síðastliðið haust. Magnús Pálsson er einn elsti og virtasti listamaður þjóðarinnar, hann hefur fengist við gjörninga síðan um 1970 og er því alvanur í því listformi, Magnús verður með nýjan gjörning sem hann semur sérstaklega af þessu tilefni. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir hefur einnig fengist við gjörningaformið af og til í gegnum tíðina, oftast tengt sýningum sem hún heldur.

Undanfarin tvö ár hefur Aðalheiður staðið fyrir gjörningadagskrá á föstudaginn langa í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Fjöldi listamanna hafa komið fram með veigamikla gjörninga og metnaður lagður í alla umgjörð og upplifun gesta. Gjörningaformið er löngu þekkt innan myndlistar og má segja að það tengji hreifilistir, leikhús, tónlist og myndlist. Gjörningar fjalla um að fanga augnablikið og ná tengslum við áhorfandann sem oft á tíðum verður þátttakandi í verkinu. Aðsókn á gjörningadagskrána á föstudaginn langa hefur verið með ólíkindum og færri hafa komist að en vildu. Er því full ástæða til að efla þessa hátíð og gera árlega.

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.