Íþróttamiðstöðin á Siglufirði opnar á ný eftir viðhald

Íþróttamiðstöð Siglufjarðar var lokuð vegna viðhalds frá 21. til 28. október sl. vegna viðhalds á sturtuklefum og sundlaugabakka. Nýtt gólfefni hefur verið sett í sturturýmin, sundlaugarbakkinn pússaður upp og lýsingin í sundlaugarsalinn endurbætt með nýjum ljósum. 

Á meðan á framkvæmdum stóð nýtti listamaðurinn Emma Sanderson tækifærið til að mála veggmynd í sundlaugarsalnum sem gefur rýminu falleg og listræna ásýnd. Verkefnið fékk styrk frá Fjallabyggð á árinu.