Líkan af nýrri viðbyggingu. Eyrargata séð til austurs.
Skólahús Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði er steinsteypt hús. Húsið hefur verið byggt í mörgum áföngum. Elsti
hluti byggingarinnar er frá 1913 og er hann nú miðhluti hússins.
Næst var byggður leikfimisalur með búningsklefum austan og norðan við elsta hlutann, og var hann tilbúinn 1917. Árið 1932 var tekin í notkun
tveggja hæða viðbygging til vesturs. Árið1954 brann leikfimisalurinn og skemmdir urðu á öðrum húshlutum. Sama ár hófust
endurbætur og viðbyggingar sem lauk 1963. Þá var byggt ofan á leikfimisal og búningsklefa auk þess sem einnar hæðar
skúrbygging var byggð við norðurhlið. Árið1993 hófust gagngerar endurbætur á núverandi skólahúsi auk þess sem
byggð var viðbygging við norðurhlið þess. Skift var um glugga, útveggir voru einangraðir að utan og múrhúðaðir, þak var
endurnýjað
og endurbætur gerðar á tæknikerfum og innréttingum. Þessum framkvæmdum lauk árið 2001.
Nú er sótt um að stækka húsið með því að byggja nýja tveggja hæða álmu til norðurs.
Burðarvirki nýbyggingarinnar er járnbent steinsteypa, súlur, veggir og gólfplötur. Steyptir innveggir og hæðarskil eru REI60.
Nýbyggingin er einangruð og múrhúðuð að innan á hefðbundinn hátt með 100 mm einangrun. Ytra byrði steyptra veggja er
múrhúðað og málað.
Þak er hefðbundið stólað þak á steyptri plötu sem einangruð er að ofan með 200 mm steinull. Ytra byrði þess er Aluzink
bárustál.
Gluggar eru hefðbundnir timburgluggar, opnanleg fög og útihurðir úr Oregone Pine.
Burðarveggir innanhúss eru steinsteyptir og múraðir en aðrir innveggir eru hjóðeinangraðir gipsveggir. Í loftum er gipsloftaklæðning
með hljóðísogi. Vélræn loftræsing er í öllum lokuðum rýmum og þar sem er málmsmíði, lökkun og leirofn.
Gólfhitunarkerfi er í gólfplötu 1. og 2. hæðar. Allar hurðir eru 90 x 210 cm.
Öll efni og vinna skulu vera í samræmi við ST staðla og reglugerðir.
Teikningar, rúmmyndir og skuggavarpsmyndir má sjá
hér. (pdf.skjal - 6MB).