Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi

Mynd: Byggðastofnun
Mynd: Byggðastofnun
Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi
 
Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að taka þátt í meðfylgandi könnun en hún er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla.
 
Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Jafnframt verða gögnin notuð til rannsókna sem birtast munu á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
 
Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni og svarar spurningum í síma 661 6099 eða í tölvupósti (thoroddur@unak.is).
 
Þátttaka í könnuninni er að sjálfsögðu frjáls og svarendum ber hvorki skylda til að svara einstökum spurningum eða könnuninni í heild. Könnunin er unnin í samræmi við lög 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sjá nánar hér.