Brúðkaup - lokasýning

Rúmlega 1.000 manns hafa nú séð "Brúðkaup", gamanleik sem saminn er af Guðmundi Ólafssyni og í hans leikstjórn, og yfirgefið Menningarhúsið Tjarnarborg með hláturkrampa í maga og gleðitár á hvarmi.
Fimmtudaginn 20. nóvember er sjöunda og síðasta sýning þessa magnaða gamanleiks og þar mun höfundurinn sjálfur taka sig til og stíga á svið með leikhópunum sem hinn óviðjafnanlegi séra Egill. 

Ekki missa af þessu frábæra verki og tryggðu þér miða í hjá Helenu í síma 845-3216.

Einnig eru ennþá nokkur eintök til af heimildarmyndinni "Samstaða" og er unnt að kaupa hana á meðan sýningu stendur. Myndin fjallar um hina mögnuðu ferð Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar í Þjóðleikhúsið með verkið "Stöngin inn!" sem valin var áhugaverðasta áhugaleiksýning leikársins 2012/13. Einnig eru unnt að panta myndina í síma 845-3216.


Leikfélag Fjallabyggðar - hópurinn sem stendur að baki Brúðkaupi.