*** Breytingar á viðverutíma SSNE vegna styrkumsókna í Uppbyggingasjóð ***

Þar sem almannvarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna Covid-19 verður að laga áður auglýstan viðverutíma vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð að nýjum aðstæðum.

Við verðum öll að gæta ítrustu varkárni og leggja okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni við veiruna. Þar er ein af megináherslunum að lágmarka samgang fólks á milli. Því býður SSNE nú rafræna aðstoð til allra þeirra sem hyggjast sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð en hægt er að bóka tíma hjá ráðgjöfum SSNE í gegnum tölvupóst eða í síma 464 5400.

Opið er fyrir umsóknir til 4 nóvember og ekki er útilokað að ráðgjafar SSNE heimsæki Fjallabyggð áður en fresturinn rennur út, en til þess þarf neyðarstigi að vera aflétt.

Um leið og SSNE þakkar skilning á þessum nauðsynlegu breytingum eru allir þeir sem hafa góðar hugmyndir í pokahorninu, hvattir til að hafa samband og bóka tíma til að fá hjálp við undirbúning eða frágang umsóknar.

Það voru mörg áhugaverð verkefni sem fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði á þessu ári en hér má sjá lista yfir þau. Verður þitt verkefni á listanum 2021?

Frekari upplýsingar veita:

Ari Páll Pálsson                      aripall@ssne.is       sími 464-5412   Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.  
Rebekka K. Garðarsdóttir     rebekka@ssne.is   sími 464-5405  Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.  
Vigdís Rún Jónsdóttir            vigdis@ssne.is       sími 464-5404  Verkefnastyrkir á sviði menningar & stofn-og rekstrarstyrkir á sviði menninga.

OPIÐ FYRIR STYRKUMSÓKNIR ÚR UPPBYGGINGARSJÓÐI NOÐURLANDS EYSTRA TIL 4. NÓVEMBER 2020

Frekari upplýsingar er að finna hér.