Breytingar á innheimtu gjalda hjá Fjallabyggð vegna Covid-19 faraldurs

Breytingar á innheimtu gjalda hjá Fjallabyggð vegna Covid-19 faraldurs.

Fasteignagjöld:

Á fundi bæjarráðs í morgun, 31. mars, var samþykkt heimild til frestunar eindaga fasteignagjalda lögaðila sem verða á gjalddaga 1. apríl, 1. maí, og 1. júní 2020 um allt að 6 mánuði vegna mögulegra áhrifa þeirrar farsóttar sem nú gengur yfir, enda verði óskað eftir því með tölvupósti á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is.

Óskir um frestun eindaga skulu rökstuddar af umsækjanda og ákvörðun tekin á grundvelli þess rökstuðnings. Hafni starfsmenn umsókn er gjaldanda heimilt að skjóta ákvörðuninni til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkti einnig breytingar á innheimtu gjalda vegna leikskóla, skólamáltíða, lengdrar viðveru í grunnskóla, vegna sund- og líkamsræktarkorta og þjónustugjalda félagsþjónustu:

Leikskólagjöld:

Ef foreldrar taka börn sín heim í samráði við leikskólastjóra vegna COVID-19 til að létta undir með skólanum er vistunargjald fyrir hvern heilan dag fellt niður svo og matargjald. Sama gildir ef leikskólinn lokar deild vegna manneklu eða af öðrum ástæðum. Semji foreldrar um skólavistun hluta úr degi til lengri tíma eru gjöld skert í hlutfalli við það. Hálftímagjald fellur niður þann tíma sem leikskólinn þarf að takmarka starfsemi við kl. 8:00 -16:00

Ef börn eru tekin heim á miðjum degi eða skólastarf stytt þann daginn fæst ekki endurgreiðsla.

Útgáfa reikninga:

Búið er að gefa út reikninga fyrir apríl sem verða bakfærðir og leiðréttir á næstu dögum vegna þjónustu sem ekki var nýtt í mars. Leiðrétting vegna apríl kemur fram í reikningagerð í maí.

Skólamáltíðir:

Skólaritari hefur sent upplýsingar fyrir apríl mánuð á gjaldkera, á aprílreikningi verða dagar sem nemendur eru heima vegna Covid-19 í mars felldir niður, þar af er öll unglingadeildin þar sem nemendur eru í fjarnámi. Foreldrar eru hvattir til að endurskoða skráningu fyrir apríl mánuð með t.d. skólasóknar barna sinna.

Útgáfa reikninga:

Við útgáfu maíreikninga verður frádráttur vegna daga í apríl sem nemendur eru heima vegna Covid-19. Skólaritari heldur utan um skráninguna.

Lengd viðvera:

Gjald fyrir Lengda viðveru fyrir þá daga í mars sem hún var lokuð kemur til frádráttar maíreikningi.
Útgáfa reikninga: Reikningar verði ekki sendir út fyrir apríl. Verði lengd viðvera starfrækt einhverja daga í apríl mun gjald vegna þeirra verða innheimt með maímánuði.

Sund og líkamsrækt:

Tímabilskort í sund og líkamsrækt framlengd um þann tíma sem lokun varir.

Þjónustugjöld félagsþjónustu:

Ekki verður innheimt fyrir þjónustu sem fellur niður, s.s. fæðisgjald í Iðju og dagdvöl aldraðra. Ekki verður innheimt fyrir þjónustu sem fellur niður á heimilum fólks með félagslega heimaþjónustu.

Reikningar hafa hingað til verið gefnir út eftir á þannig að ekki ætti að koma til sérstakra leiðréttinga.

Áframhaldandi aðgerðir til viðspyrnu vegna Covid-19 var samþykkt að:

Á fundi sínum samþykkti bæjarráð einnig að fela bæjarstjóra, forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að móta tillögur að frekari aðgerðaáætlun sveitarfélagsins. Við mótun tillagna skal horft til fjárhags sveitarfélagsins, fjárhagsáætlunar, framkvæmdaáætlunar og hugmynda og ábendinga Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 20. mars sl. Tillögur að aðgerðum verði lagðar fyrir í bæjarráð eða bæjarstjórn eftir því sem fram vindur.