Vakin er athygli á því að útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september.
Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20:00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22:00.
Bregða má út af reglunum hjá eldri hópnum þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
Útivistarreglurnar eru settar samkvæmt barnaverndarlögum og er þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.
Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.
Mikilvægt er að foreldrar sýni samtöðu er kemur að því að virða útivistartímann.