Breyting á gerð kjörskrárstofns

Breytingar á skráningu námsmanna
Breytingar á skráningu námsmanna

Þjóðskrá Íslands hefur kynnt breytingar á skráningu námsmanna á Norðurlöndum á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar. Nú þurfa námsmenn að sækja rafrænt um það til Þjóðskrár að vera teknir á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar.

Umsóknareyðublað verður á vef Þjóðskrár Íslands, www.skra.is, og verður tilskilið að framvísa staðfestingu á námsvist. 

Íslendingar sem hafa haft lögheimili erlendis lengur en 8 ár þurfa reglulega að endurnýja kosningarétt sinn með því að sækja um það til Þjóðskrár Íslands. 

Hér í viðhengi er tilkynning frá Þjóðskrá Íslands varðandi breytingar á gerð kjörskrárstofns.