Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032

Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032
Vetrarbraut 8-10 – breyttir skilmálar.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti 28. nóvember 2024 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að eftirfarandi setningu er bætt við sérákvæði landnotkunarreitsins 216, AT: Verslun og þjónusta tengd bruggverksmiðju er leyfileg. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 4.11.2024.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til tæknideildar Fjallabyggðar.

Pálmi Blængsson, verkefnastjóri