Bókasafnsdagurinn - lestur er bestur
Bókasafnsdagurinn lestur er bestur - út fyrir endimörk alheimsins.
Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 8.september 2016.
Markmið dagsins er tvíþætt:
Að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu.
Vera hátíðisdagur starfsmanna safnanna.
- Sameinuðu þjóðirnar gerðu þennan dag að alþjóðadegi læsis árið 1965. Á þessum degi er fólk, hvar sem það er í heiminum, hvatt til þess að lesa upp, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota tungumálið til ánægjulegra samskipta.
- Líttu við á bókasafninu þínu og hjálpaðu okkur að halda upp á daginn. Við ætlum að líta okkur nær og skoða menningararfinn. Bækur sem tengjast nýju verkefni Fjallabyggðar „Matur, handverk, þjóðtrú – hver er þinn menningararfur? liggja frammi og frá kl.16.00-17.00 munu fulltrúar verkefnisins vera í bókasafninu á Siglufirði og kynna verkefnið. Mánudaginn 12. september, frá 16.00-17.00, verða fulltrúar verkefnisins svo í bókasafninu á Ólafsfirði.
- Gömul skjöl sem tengjast sögu bæjanna okkar liggja frammi.
- Gefum bækur
- Heitt á könnunni og meðlæti