Bókamarkaður

Bókasafnið er til húsa í Ráðhúsi Fjallabyggðar
Bókasafnið er til húsa í Ráðhúsi Fjallabyggðar

Laugardaginn 26. mars verður bókamarkaður á Bókasafni Fjallabyggðar, Siglufirði. Opið verður milli kl. 14:00 - 17:00.
Hægt verður að fylla haldapoka fyrir 2.000 kr.
Einnig verður hægt að kaupa stakar bækur á 100 og 200 kr og tímarit á  20 kr.
Velkomið að prútta.
Einnig munu liggja frammi gamlar ljósmyndir í eigu héraðsskjalasafns og þiggjum við ykkar aðstoð við að þekkja þá sem eru á myndunum!

Afgreiðslutími Bókasafns Fjallabyggðar verður eftirfarandi yfir páskana: 
- miðvikudagur 23. mars: opið 13:30 - 17:00
- fimmtudagur 24. mars (skírdagur): LOKAР
- föstudagur 25. mars (föstudagurinn langi): LOKAÐ
- laugardagur 26. mars: opið 14.00-17.00 á Siglufirði - BÓKAMARKAÐUR
- sunnudagur 27. mars (páskadagur): LOKAР
- mánudagur 28. mars (annar í páskum): LOKAР
- þriðjudagur 29. mars: opið 13:00 - 17:00